31.5.11

Carline van Oel

Á Emmas designblogg fann ég myndir af heimili hollenska stílistans Carline van Oel.

Mjölk

er afar áhugaverð netverslun með fallegt dót í miklu úrvali.

28.5.11

Urban Deli Nytorget

Urban Deli í Stokkhólmi er frábær staður sem vert er að skoða, alveg einstök matvöruverslun + veitingastaður í sama húsi.

Acapulco í leðri

Er alltaf svolítið hrifin af þessum Acapulco-stólum - áður hér.

Barnaherbergi fyrir 2

Sniðug lausn á barnaherbergi (ef hátt er til lofts) - meira um heimilið hér. Ljósmynd William Abranowicz fyrir Elle Decor.

Huggulegt heimili í Stokkhólmi

Ljósmyndir Birgitta Wolfgang Drejer af síðunni french by design.

26.5.11

Semi-loftljós - S E L T

Til sölu gamalt svart Semi-loftljós (60 cm, stærsta tegundin) sem ég hef áður fjallað um hér. Hönnun Claus Bonderup og Torsten Thorup frá árinu 1967, framleiðandi Fog & Mörup. Nokkrar síður með myndum og upplýsingum hér, hér, hér og hér. Tilboð óskast, olofjakobina@gmail.com

Slow wood

Skemmtileg húsgögn frá Hollandi - meira hér.

25.5.11

Ballograf

Við hjónaleysin fórum til Stokkhólms í síðustu viku og þar í safnabúð Moderna Museet (sem er alveg frábær) fjárfesti ég í þessum fína sænska Ballograf-penna. Og þvílík nostalgía - mér finnst ég vera komin í gamlan og góðan banka norður á Akureyri einhverntíma á seinnihluta síðustu aldar.

20.5.11

Hæð í Glaðheimum - S E L D

Vinafólk mitt er að flytja úr landi og er því að selja íbúðina sína, dásamlega hæð í 104. Ég hef áður birt myndir af eldhúsinu þeirra hér en fleiri myndir og nánari upplýsingar má svo finna hér.

9.5.11

Kevi-stóll til sölu - S E L D U R

Ég á einn fagurrauðan Kevi-stól sem mig langar til að selja. Skrifborðsstólarnir voru hannaðir af dönsku tvíburunum og arkitektunum Ib og Jørgen Rasmussen. Í dag er Engelbrechts framleiðandi stólanna og mér sýnist að viðmiðunarverð á þeim sé 3900 danskar krónur eða um 85.000. Er til í að láta minn gamla á 8000 krónur.