27.12.08

CITY (2004)

Og þessa kertastjaka. Þeir heita City og eiga að mynda einhverskonar borg.

SoLo (2004)

Sama ár gerði ég líka sófaborð.

Eldhúsborð (2004)

Ég var að taka til í gömlum myndum og rakst þá á þessar af eldhúsborði sem ég gerði árið 2004. Framleiðandi var og er Sólóhúsgögn.

20.12.08

Enn eitt fína jólatréð - sjá Atelier XT.

17.12.08

Jólatré til sölu

Ég lét búa til þessi krúttlegu tréjólatré fyrir jólabasarinn í Neskirkju á dögunum. Þau vöktu mikla lukku og lét ég því gera fleiri og á nú nokkur óseld. Tilvalin í jólagjafir - munu endast um aldur og ævi og svo fer ekkert fyrir þeim í geymslunni.

Jólatréð á vegg

Hér er eitt ótrúlega krúttlegt jólatré gert af Jane Shouten í All the Luck in the World. Ég vildi óska mér að ég hefði lausan vegg ... og nægan tíma til að dunda mér.

13.12.08

It really ties the room together

Ég keypti þessa voða sætu mottu í gær í Saltfélaginu á svakalegum afslætti. Hún átti held ég að kosta 35.000 eða meira en var komin niður í 5900 kr. Mottan heitir Birdie, er frá Donnu Wilson og fæst í tveimur grænum litum og líka brún. Ég er ægilega ánægð með kaupin og hún fullkomnar herbergi sonarins ;)

RE-found Objects

Í netversluninni RE fæst allskonar fallegt pappírsskraut. Mér finnast t.d. þessar stóru jólakúlur algjört æði.

11.12.08

Jólatré í safnið

Þessi kókostrefjajólatré fást í Kokku á Laugaveginum og ég er að hugsa um að splæsa á mig einu stykki eða svo. Ætlaði alltaf að gera það í fyrra en lét ekki verða að því, þannig að nú er tækifærið - skelli mér á eitt stórt ljósgrænt. Ég er viss um að það mun fara vel um það í eldhúsglugganum ásamt nokkrum kertum.

10.12.08

Innirólur fyrir alla fjölskylduna

Mér finnst ótrúlega sjarmerandi að hafa rólu inni hjá sér og það helst í stofunni, veit þó ekki hvernig það myndi virka hér á heimilinu, allavega hef ég ekki látið verða að því ennþá.

Á óskalistanum

Þetta eru þær sætustu tréstyttur sem ég hef séð. Algjörlega ómótstæðilegar! Þær eru hönnun Hans Bølling frá 1959 og eru framleiddar af Architectmade. Fást í Epal.

8.12.08

Og annað sniðugt tré af sömu vefsíðu ...

Seríutré

Þetta er voða sniðugt ef þú átt tóman vegg en lítið pláss fyrir tré. Myndina fann ég á www.dominomag.com.

3.12.08

Loft í Chicago

Þessar myndir eru teknar á heimili sænska ljósmyndarans Andreas Larsson. Ægilega huggulegt hjá honum ...

2.12.08

Ngoc Minh Ngo

Hér eru nokkrar fallegar og inspirerandi myndir ljósmyndarans Ngoc Minh Ngo.